Vorverkin ganga hægt í Bandaríkjunum
07.05.2013
Það er víðar en á Íslandi sem vorverkin eru seinna á ferðinni en venja er til. Samkvæmt vikulegri skýrslu bandaríska landbúnaðarráðuneytisins um framgang helstu nytjaplantna, er kornsáning þarlendra bænda mun seinna á ferðinni en hefðbundið má teljast. Í átján af stærstu maísræktarfylkjunum er nú einungis búið að sá um 12% af þeim maís sem fyrirhugað er að rækta á þessu ári. Þetta er lægsta hlutfall síðan árið 1985; ástæðan er kuldi og votviðri. Á sama tíma í fyrra var búið að sá tæplega 70% af maísnum. Miklu skiptir því að sumarið verði gott, svo að maísinn nái þroska, en eins og sumir muna eyðilagðist umtalsverður hluti maísuppskerunnar vestanhafs í fyrra vegna mestu þurrka sem þar hafa komið í hálfa öld.
Sáning sojabauna er nánast ekkert komin af stað, aðeins er búið að sá í 2% sojabaunaakra en í maíbyrjun í fyrra var búið að sá í ríflega 20% akranna. Lengst er sáningin komin í Louisiana, 39% (59% á sama tíma í fyrra) og Mississippi þar sem búið er að sá í 15% akra (72% á sama tíma 2012). Þroski vetrarhveitis er einnig skemmra á veg kominn en undanfarin ár, um 20% akra í helstu hveitiræktarfylkjunum voru skriðnir í lok síðustu viku, meðaltal síðustu 5 ára er 39%. Aftur á móti er almennt ástand hveitiakra talið gott, 63% akranna fá þá einkunn að vera í góðu eða mjög góðu ástandi./BHB