Beint í efni

Viskukýrin 2007

21.02.2007

Í gærkvöldi stóð Stúdentaráð Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir spurningakeppninni Viskukýrin 2007. Þetta er árlegur viðburður á vegum Stúdentaráðsins og er Landssamband kúabænda einn af bakhjörlum keppninnar. Keppnin hefur notið sívaxandi vinsælda og var þétt setinn bekkurinn í matsal LBHÍ í þetta skiptið og skemmtu áhorfendur sér hið besta. Stjórnandi keppninnar og spyrill var Logi Bergmann Eiðsson og stóð hann sig framúrskarandi vel í því hlutverki.

Að þessu sinni mættu átta lið til keppni. Spurningarnar voru margvíslegar, almenns eðlis og mjög sérhæfð viðfangsefni úr landbúnaði, t.d. hver væri faðir stóðhestins Stála frá Kjarri og hvort nautið Þollur 99008 væri rauðbrandhuppóttur eða rauðbrandsokkóttur. Þá voru margs konar tóndæmi og myndir, m.a. af ýmsum smærri kauptúnum landsins, lagðar fyrir keppendur. Vakti athygli hve allt efni var fagmannlega unnið og eiga aðstandendur keppninnar heiður skilinn fyrir þeirra framlag. Sigurlið keppninnar var lið heimamanna, skipað þeim félögum Sveinbirni Eyjólfssyni framkvæmdastjóra Nautastöðvar BÍ, Magnúsi B. Jónssyni prófessor í búfjárrækt við LBHÍ og Hauki Júlíussyni forstjóra verktakafyrirtækisins Jörva. Hlutu þeir verðlaunagripinn Viskukúna sem hannaður var að Bjarna Guðmundssyni prófessor í bútækni og smíðaður var af Hauki Þórðarsyni starfsmanni LBHÍ.  

 

Keppnislið framhaldsnema, f.v. Eyjólfur Kristinn Örnólfsson, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson. Súrmetið er frá Borgarnes kjötvörum og mjólkin úr kvöldmjöltum í Hvanneyrarfjósi