Beint í efni

Vinnsla á kynbótamati í nautgriparækt stendur yfir

16.01.2009

Þessa dagana stendur yfir vinnsla á kynbótamati í nautgriparækt. Síðan árið 2005 hefur aðal vinnsla þess farið fram í nóvember en með upptöku á nýju skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt, var ákveðið að færa hana aftur um tvo mánuði. Framvegis standa vonir til að kynbótamatið verði unnið nokkrum sinnum á ári, fyrir þá eiginleika sem nýjar upplýsingar bætast við reglulega.

Eins og flestir þekkja eru það afurðaeiginleikarnir, mjólkurmagn og efnainnihald, frumutala, ending og frjósemi (tveir þeir síðasttöldu byggja á upplýsingum um farganir og burði) sem svo gildir um. Að sjálfsögðu byggir það á mánaðarlegum skýrsluskilum og reglulegum mjólkursýnatökum úr einstökum kúm, sem tíðkast á öllum betri búum. Mat á útliti, gæðaröð, skapi og mjöltum er hins vegar bara framkvæmt einu sinni á ári. Meðan svo er þjónar ekki tilgangi að gera kynbótamat á þeim eiginleikum oftar en það, eðli málsins samkvæmt.