Viku nyt úr 8.000 kúm þurfti í bolludagsrjómann!
11.02.2013
Nær áttatíu þúsund lítrar af rjóma fóru út í verslanir og bakarí vikuna fyrir bolludag. Til þess að framleiða svo mikinn rjóma þarf um eina milljón lítra af mjólk, sem er það magn sem fæst úr u.þ.b. 8.000 kúm á einni viku. Á Íslandi eru um 25.000 mjólkurkýr og því þurfti um 30% af heildarstofninum til þessa verkefnis.
Að sögn Aðalsteins H. Magnússonar sölustjóra hjá Mjólkursamsölunni er gífurlegt magn af rjóma notað ár hvert í kringum bolludaginn. Ef miðað er við meðal viku, þá þrefaldast rjómamagnið vikuna fyrir bolludag. Mikið af rjómanum er notaður á heimilum en bakarar eru einnig stórtækir notendur./BHB