Beint í efni

Viðtal við Þórarinn Jónsson á Hálsi

10.09.2009

Vegna viðtals sem birt var í sjónvarpi mbl.is í morgun, 10. september, vill LK koma eftirfarandi á framfæri:

 

Landssamband kúabænda harmar ummæli Þórarins þar sem hann setur fram ýmsar staðhæfingar um kjötvörur, án þess að nefna nein dæmi máli sínu til sönnunar. Með þessu er að mati LK vegið ómaklega að öðrum framleiðendum og vinnsluaðilum nautakjöts.

Það er keppikefli allra þeirra sem vinna við matvælaframleiðslu í landinu að neytendur hafi ávallt aðgang að gæðavörum, hvort sem um er að ræða kjöt beint frá bónda, úr kjötborði eða unnar kjötvörur frá virtum og viðurkenndum kjötvinnslum.