Viðhorfskönnun Landssambands kúabænda 2013
15.02.2013
Á annað hundrað bændur hafa nú þegar svarað viðhorfskönnun Landssambands kúabænda sem send var út sl. þriðjudag. Hringt er í þá sem ekki hafa tölvupóstfang. Samtökin vilja eindregið hvetja umbjóðendur sína til að taka þátt í könnuninni, með henni má afla mikilvægra upplýsinga um grundvallar hagsmunamál greinarinnar. Niðurstöður verða kunngerðar á aðalfundi LK á Egilsstöðum 22. og 23. mars n.k./BHB