Beint í efni

Viðbúnaður vegna aukinnar eldvirkni í Eyjafjallajökli

05.03.2010

Vegna aukinnar virkni í Eyjafjallajökli hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra beðið Matvælastofnun að hvetja alla þá sem hafa með búfjárhald að gera í nágrenni jökulsins að fylgjast vel með fréttum útvarpsstöðva. Nýjustu fréttir eru einnig að finna á heimasíðu Almannavarna: www.almannavarnir.is.

Hægt er að skrá sig í áskrift að tilkynningum og fréttum á vef almannavarna og fá þannig nýjustu meldingar í tölvupósti.

Upplýsingar um áhrif eldgosa á dýr má nálgast í eftirfarandi greinum:

Grein um áhrif eldgosa á dýr

Skýrsla um áhrif eldgosa á dýr

Vefur almannavarna

/MAST / BÍ