Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Viðbrögð við slæmri tíð á Norður- og Austurlandi

30.04.2013

Fulltrúar Bændasamtakanna, Bjargráðasjóðs, Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins funduðu nýlega um þá stöðu sem uppi er á Norður- og Austurlandi vegna snjóþyngsla, klaka í túnum og mögulegs heyskorts. Á fundinum var ákveðið að ráðast í kortlagningu á vandanum og verður þar m.a. skoðað í hvaða sveitum líklegt er að vandamál muni koma upp og hvað það nái til margra bæja og túna.

Ljóst er að á mörgum bæjum eru heybirgðir takmarkaðar en ótíðin á þessu vori kemur ofan í lélegan heyskap á síðasta sumri. Þá er stutt í að sauðburður hefjist og vandamál með hýsingu er yfirvofandi á mörgum bæjum þar sem hætt er við að erfitt verði að hleypa fé úr húsi vegna snjóþyngsla.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins býður bændum ráðgjöf án endurgjalds og hefur ráðgjafi verið á ferð um Norðurland. Meðal þess sem hann metur er hvernig best er hægt að endurvinna kalin tún og hvernig best sé að rækta annað land sem gæti gefið fóður fyrir næsta vetur.

Á fundinum var jafnframt rætt um að koma á fót föstum viðbragðshópi sem kæmi saman þegar að náttúruvöldin byðu bændum birginn og ættu sæti í honum fulltrúar frá ráðuneyti, Bændasamtökunum, Bjargráðasjóði og öðrum þeim stofnunum sem að rétt þykir að kalla til leiks.