
Viðbragðsáætlun Gæðaeftirlits Auðhumlu vegna COVID-19
10.03.2020
Gæðaeftirlit Auðhumlu flytur starfsstöðvar sínar tímabundið meðan óvissuástand er frá vinnslustöðvum MS. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sviðsstjóra Gæðaeftirlits Auðhumlu.
„Heimsóknir Gæðaeftirlitsins til mjólkurframleiðenda varðandi öflun aukasýna verða takmarkaðar eins og kostur er, enginn framleiðandi verður heimsóttur nema í ýtrustu neyð og í samráði við viðkomandi. Varðandi aukasýni ef upp koma tilfelli þar sem vafi er um mjólkurgæði þá verður fyrsti kostur alltaf að láta mjólkurbílstjóra taka sýni. Í stuttu máli þá mun Gæðaeftirlitið sinna sínum störfum eins og kostur er gegnum síma og tölvur, og veita ráðgjöf eins og áður, en ferðalög um sveitir og milli bæja verða takmörkuð eins og kostur er. Þessi viðbragðsáætlun mun vafalaust taka á sig nýjar sviðsmyndir á næstu dögum, en svona höfum við þetta til að byrja með.“