Beint í efni

Verðskrár fóðursala uppfærðar

11.04.2008

Verðskrár kjarnfóðursala hafa verð uppfærðar og er þær að finna hér. Gífurlegar hækkanir hafa verið á kjarnfóðri þar sem af er aprílmánuði. Fóðurblandan hækkaði verð um 12-21% þann 3. apríl, en lækkaði aftur verð um 1-2% á nokkrum blöndum þann 9. Lífland hækkaði verð um 10-21% þann 7. og Bústólpi ehf hækkaði verð á sínum blöndum um 9-21% þann 10. apríl. 

 

Ekki hafa borist verðlistar frá öðrum kjarnfóðursölum.

Tilgreindar ástæður hækkananna að þessu sinni er veiking á gengi íslensku krónunnar og hækkanir á hráefnisverði erlendis.

 

Í mars 2007 var verð á 16% blöndum, með bestu viðskiptakjörum, á bilinu 37-39 kr/kg. Í dag er verð á sömu blöndum milli 58 og 59 kr/kg, með mestu afsláttum. Það jafngildir ríflega 50% hækkun á rúmu ári.