Beint í efni

Verðlisti Norðlenska er langt undir væntingum bænda segir formaður BÍ

13.08.2008

Norðlenska matborðið birti í dag, fyrst afurðasölufyrirtækja, verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Í megindráttum eru breytingarnar fólgnar í 15% hækkun á alla kjötflokka og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækka um tæp 29%. Sauðfjárbændur hafa beðið óþreyjufullir eftir verðlistum sláturleyfishafa og ljóst að rekstrargrundvöllur margra sauðfjárbúa er brostinn við þessi tíðindi. Sem kunnugt er gerðu sauðfjárbændur sér vonir um hækkanir allt að 27% eins og fram kemur í viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda sem þau hafa heimild til að birta samkvæmt lögum. Á vef Norðlenska er tekið fram að fyrirtækið áskili sér rétt til að breyta verðskránni til samræmis við verðskrá annarra stórra sláturleyfishafa. Þar segir einnig að verðhækkunum þurfi að koma út í verðlagið því rekstur Norðlenska geti ekki tekið þær allar á sig.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði í samtali við Bændablaðið að verðlistinn frá Norðlenska væri mikið áfall fyrir bændur og langt undir væntingum. „Bændur þurfa að mæta miklum hækkunum á aðföngum, m.a. vegna hækkana erlendis, t.d. á áburði og olíu. Þetta eru þættir í rekstrinum sem bændur hafa engin áhrif á og verða að sækja í hærra afurðaverði,” segir Haraldur. Hann telur að afurðasölufyrirtækin, sem mörg hver eru í eigu bænda og stjórnað af þeim, þurfi að fara ítarlega yfir þá alvarlegu stöðu sem upp er komin.

Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, tók í sama streng og Haraldur. „Þessar fregnir eru mikil vonbrigði fyrir okkur sauðfjárbændur. 15% hækkun afurðaverðs dugir engan veginn til þess að mæta þeim miklu hækkunum sem orðið hafa á aðföngum eins og olíu, áburði og rúlluplasti. Þá hefur fjármagnskostnaður aukist mikið og þessi hækkun er einfaldlega alltof lítil til að mæta útgjöldum bænda,“ segir Jóhannes og harmar það að tölurnar séu ekki nær viðmiðunarverði Landssamtaka sauðfjárbænda sem gefið var út á sínum tíma.

Frekari umfjöllun um þessi mál er að finna á vef Bændablaðsins: www.bbl.is og vef Landssamtaka sauðfjárbænda: www.saudfe.is

Upplýsingar um viðmiðunarverð er að finna hér.

Sjá einnig heimasíðu Norðlenska: www.nordlenska.is