Verðlistar kjarnfóðurs uppfærðir
14.11.2011
Verðlistar kjarnfóðursala hafa nú verið uppfærðir hér á naut.is en verðið lækkaði í síðustu viku hjá þremur fóðursölum, Líflandi, Bústólpa og Fóðurblöndunni. Lækkunin var mismikil eftir blöndum, mest á þeim sem innihalda fiskimjöl en verðið á því hefur verið að lækka nokkuð að undanförnu. Í sögulegu samhengi er verðið á því þó enn geysihátt. Að sögn fóðursala hefur innkaupsverð á hveiti og byggi einnig lækkað nokkuð, þó minna en á fiskimjölinu. Verð á algengum blöndum er nú svipað og það var í febrúar á þessu ári, það fór hækkandi framan af árinu en hefur nú lækkað í tvígang, í september og síðan aftur nú í nóvembermánuði.
Hér neðst í pistlinum er hlekkur á kjarnfóðursíðuna. Landssambandi kúabænda er kunnugt um að Landstólpi ehf. hefur stundað talsverðan innflutning á kjarnfóðri, en upplýsingar um verð og greiðslukjör hafa ekki borist frá félaginu þrátt fyrir að eftir þeim hafi verið leitað.
Samantekt Landssambands kúabænda á kjarnfóðurverði 14. nóvember 2011.