Beint í efni

VERÐLÍKANI LK UM VERÐMÆTI SLÁTURGRIPA BREYTT !

11.07.2005

Þriðjudaginn 12. júlí tekur gildi nýtt verðlíkan við útreikninga á verðmæti sláturgripa. Í því líkani verður bætt við tveimur flokkum til viðbótar (UNI Ú A og KI B), sem og sett inn vikmörk á UNI A (+20 kg og – 20 kg). Eftir þessa breytingu tekur líkanið til allra algengustu sláturflokkanna og þar með rúmlega 70 % nautgripakjötsframleiðslunnar í landinu. Jafnframt mun líkanið fanga betur breytileika í

verðum sláturleyfishafa innan verðflokksins UNI A og þá mun líkanið taka aukið tilltið til hlutfalls hvers flokks af heildarframleiðslu.

 

Fjöldi gripa sem líkanið mun taka tillit til verður 9 og þar af mun líkanið reikna með því að viðkomandi innleggjandi fari sjálf(ur) með 3 gripi til slátrunar en sendi hina með sláturbíl.