Beint í efni

Verðlagsmálin tekin fyrir í leiðara október á naut.is

16.10.2017

Axel Kárason, framkvæmdastjóri LK, ritar leiðara októbermánuðar á naut.is og gerir verðlagsmálin að umfjöllunarefni enda fyrsti fundur í nýskipaðri Verðlagsnefnd búvara framundan. Fjallar hann sérstaklega um skipun á fulltrúum hins opinbera í nefndina, sem hefur vægast sagt verið gagnrýnd hraustlega. Þá ræðir hann einnig EUROP kjötmatið og bendir á að margt bendi til þess að verðflokkar kjötmatsins þarfnist endurskoðunar við og segir m.a.: „Allir sem þekkja framleiðsluferil nautgripakjöts gera sér grein fyrir því að þeir gripir koma nú til innleggs voru settir á töluvert áður en þessar breytingar áttu sér stað. Því er eðlilegt að verðskráin samkvæmt gamla matinu sé höfð til hliðsjónar á þeirri nýju, og ákaflega mikilvægt að verðfalli upp á 10-20% sé ekki skellt framan í bændur. Það gæti algjörlega snúist í höndunum á atvinnuveginum og orðið til þess að bændur sjái hreinlega ekki fram á að það sé hagur af því að setja aukin kraft í framleiðsluna og hverfi frá henni.“

Með því að smella hér getur þú lesið leiðarann í heild sinni, en hann má einnig finna hér á forsíðu naut.is/SS.