Verðlækkanir hjá Fóðurblöndunni og Bústólpa – verðhækkun hjá SS
06.05.2010
Fóðurblandan hf og Bústólpi ehf hafa lækkað verð á kjarnfóðri um allt að 3% vegna hagstæðrar þróunar á hráefnisverði og gengisþróunar. Lækkunin hjá Bústólpa tók gildi 30. apríl en í fyrradag, 4. maí hjá Fóðurblöndunni. Þá lækkaði Lífland verðið þann 12. apríl s.l. eins og fram hefur komið. SS hækkaði verð á kjarnfóðri um 2% þann 1. apríl sl. Þeirrar hækkunar hefur í engu verið getið og ber að átelja það, að mati LK er það eðlileg kurteisi gagnvart viðskiptavinum að tilkynna um verðbreytingar.
Athugasemdum vegna þessa hefur verið komið á framfæri við SS og hefur úrbótum verið heitið. Verðlista á kjarnfóðri má sjá hér.
Eftir þessar verðbreytingar kostar eitt tonn af 16% jurtapróteinblöndu eins og sjá má í töflunni hér að neðan:
Tegund og fyrirtæki | Lægsta verð í lausu, kr. |
DK-16 Fóðurblandan | 53.945 |
DK-16 Bústólpi | 53.965 |
Sparnyt 16 Lífland | 55.221 |
Malko Lac græs SS | 55.686 |