
Verðhækkun hjá KS á nautgripakjöti og fleiri flokkar
05.09.2017
Um síðustu mánaðarmót tók ný verðskrá gildi hjá Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) og tekur hún mið af EUROP kjötmatskerfinu eins og við greindum frá í frétt hér 1. september sl. Fyrsta verðskráin sem var birt hefur nú þegar tekið örlitlum breytingum, en bæði hefur KS hækkað alla verðflokka og auk þess hefur KS bætt við tveimur verðflokkum til viðbótar: „UN R+ 3 >250 kg“ og „UN U 2+ >250 kg“.
Með því að smella hér má sjá gildandi verðskrá þar sem efst er nýr verðlisti KS og neðar í listanum eru upplýsingar hinna sláturleyfishafanna/SS.