Beint í efni

Verðbreytingar um áramót

05.01.2017

Um áramótin tóku gildi nýjar verðskrár á þjónustu sem Bændasamtökin veita.

Frá og með 1. janúar 2017 hækka stofn- og árgjöld skýrsluhaldsforrita BÍ um 11% sem er í takt við launavísitölu samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Einnig hækka taxtar fyrir útselda vinnu og tölvuþjónustu um 11%. Verðskrá forrita og tölvuþjónustu má sjá hér

Bændablaðið kynnti breytingar á verðskrá þess í síðasta blaði ársins 2016. Áskriftargjald hækkar úr 9.900 krónum í 10.200 krónur á ári. Verð á dálksentímetra í auglýs­ingum hækkar um 3,4%, fer úr 1.450 krónum í 1.500 krónur án virðisaukaskatts. Ástæður verðhækkunar á gjaldskrá Bændablaðsins eru almennar verðlags­breytingar, launaþróun og aukinn dreifingarkostnaður.