Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Verðbreytingar á mjólk

28.12.2016

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið samhljóða ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum hækki um 1,7% hinn 1. janúar nk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 1,24 kr. á lítra mjólkur, úr 86,16 kr. í 87,40 kr. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um 1,51 kr. á lítra mjólkur.

Samanlögð hækkun heildsöluverðs er því 2,75 kr. á hvern lítra mjólkur. Verðhækkunin er til komin vegna uppsafnaðra hækkana á vinnslu- og rekstrarkostnaði segir í rökstuðningi frá verðlagsnefnd búvara.