Beint í efni

Verð til bænda á nautgripakjöti hækkar!

02.03.2004

Samkvæmt nýju yfirliti LK um verð á nautgripakjöti til bænda kemur fram að verð eru farin að þokast í rétta átt. Sölufélag A-Hún. hækkaði verð á kúm og Sláturhúsið á Hellu hefur hækkað verð á flestum flokkum og greiðir nú hæstu verð á flesta flokka á öllu landinu. Jafnframt staðgreiðir Sláturhúsið á Hellu alla gripi. Þá greiða SS (ungnaut og kýr) og Borgarnes kjötvörur (kýr) annan föstudag eftir slátrun, en enn eru margir sláturleyfishafar sem greiða ekki fyrr en löngu eftir slátrun.

 

Nánar má sjá verð sláturleyfishafa til bænda í mars með því að smella hér.