Verð á umframmjólk frá 1. september 2012
03.09.2012
Stjórn Auðhumlu hefur ákveðið verð á umframmjólk frá 1. september 2012 kr. 38,00 fyrir fyrstu 2% umfram greiðslumark og kr. 33,00 fyrir það sem umfram það er. Verð á umframmjólkinni markast af heimsmarkaðsverði á undanrennudufti og smjöri sem hefur heldur rétt úr kútnum að undanförnu.
Tilkynning frá Auðhumlu svf.