Verð á umframmjólk frá 1. október 2010
13.10.2010
Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Auðhumlu svf.
Verð á mjólkurafurðum á heimsmarkaði hefur hækkað undanfarin misseri og það hefur endurspeglast í tekjum Mjólkursamsölunnar. Þetta á einkum við um smjörmarkað. Á sama tíma hefur meðal gengi bandaríkjadollars gagnvart krónu lækkað um 12%. Gengi evru hefur einnig lækkað gagnvart krónu og þetta hefur neikvæð áhrif á útflutningstekjurnar.
Í upphafi þessa almanaksárs var ákveðið að greiðslumarkshöfum yrðu greiddar 35 krónur fyrir hvern lítra umframmjólkur til útflutnings, sem næmi 1,5% af greiðslumarki hvers og eins. Þá var einnig ákveðið að greiðsla fyrir aðra umframmjólk yrði að lágmarki 25 krónur á þessu almanaksári. Ennfremur að þessi verð yrðu endurskoðuð ársfjórðungslega. Verðið var hækkað í upphafi þriðja ársfjórðungs og nú kemur önnur hækkun til framkvæmda.
Reiknað hefur verið út hver eftirtekja MS verður af útflutningi á árinu í heild og á grundvelli þess hefur umframmjólkurverð verið ákvarðað fyrir síðasta ársfjórðung.
Fyrir þann hluta umframframleiðslunnar, sem telst til þess hluta sem samsvarar 1,5% af greiðslumarki, verða á þessum síðasta ársfjórðungi greiddar kr. 43,70 fyrir hvern lítra. Fyrir aðra umframmjólk verða á þessum ársfjórðungi greiddar kr. 35,50 fyrir hvern lítra.
Með félagskveðju
Einar Sigurðsson