
Verð á tollkvótum fyrir osta lækkaði í útboði
28.01.2021
Þann 26. janúar birti atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið niðurstöður útboðs á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til desember 2021. Verð á tollkvóta fyrir ost lækkaði úr 680 kr /kg á tímabilinu júlí-des 2020 í 642 kr/kg nú. Fréttir um hækkun verðs á tollkvótum eiga því ekki við þróun á verði fyrir ostakvóta eins og sjá má af meðfylgjandi töflu.
Í tilkynningu frá Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) segir að nauðsynlegt sé að hafa í huga að verð á tollkvóta ræðst af mörgum þáttum, ekki einvörðungu fyrirkomulagi á útboði tollkvóta. Þar má nefna verð frá birgjum erlendis, verð á markaði hér á landi, gildandi tollur á innflutningi, eftirspurn o.s.frv. Fréttaflutningur um hækkandi verð á tollkvótum á því ekki við um verð á tollkvótum fyrir ost.