Verð á greiðslumarki er 200 kr/ltr
01.09.2015
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2015 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 200 fyrir hvern lítra mjólkur.
Alls bárust Matvælastofnun 24 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu = 9
- Fjöldi gildra tilboða um kaup = 15
- Greiðslumark sem boðið var fram = 367.368 lítrar.
- Greiðslumark sem óskað var eftir = 950.000 lítrar.
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 367.368 lítrar.
- Kauphlutfall viðskipta er 90.71 %
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. september 2015. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 200 kr./l.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 200,- kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt.
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. apríl 2015 sýnir eftirfarandi:
- að framboð er nú 107,1 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
- að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 155,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
- að verð á greiðslumarki nú er 50 krónum hærra en það var á markaði þann 1. apríl 2015