Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Verð á greiðslumarki 140 kr/ltr

03.11.2014

Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. nóvember 2014 skv. reglugerð nr. 190/2011 með síðari breytingum, hefur komið fram  jafnvægisverð á markaði krónur 140 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.

Alls bárust Matvælastofnun 6 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 4 
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 2
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 189.917 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 112.404 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 48.654 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 43.28 % 

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. nóvember 2014. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 140 kr/l. 

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  140,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 

 

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. september 2014 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 80,5 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 674,5 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er 40 krónum lægra en það var á markaði þann 1. september 2014