Veldur kúamjólk “kúahegðun” barna?
20.03.2014
Það er stundum á brattann að sækja eins og gengur en stundum virðist brattinn vera meiri en viðráðanlegur. Það hlýtur að hafa hvarflað að markaðsfólki mjólkurvara í Ghana um daginn þegar forseti hjartaverndar þar í landi hélt því fram að ef ungabörn fengju mjólk frá kúm í stað brjóstamjólkur þá væri hætta á því að börnin myndu sýna dýrslega hegðun þegar þau yxu úr grasi!
Þetta kom fram í útvarpsþætti í Ghana þegar prófessor Kwabena Frimpong Boateng, forseti umræddra samtaka, var í viðtali en haft er eftir honum á ýmsum fréttamiðlum að hann hafi sagt að ef maður vill að börnin stækki og hugsi eins og kýr, þá er um að gera að gefa þeim kúamjólk. En hann hafi svo bætt um betur og sagt: „brjóstamjólk inniheldur sérstök prótein sem hjálpa til við þroska barnanna svo þau læri að skríða eða ganga, í kúamjólk eru hins vegar prótein sem gefa styrk svo þú getir gengið og étið gras“. Þá vitum við það og það frá manni sem er titlaður prófessor, þeir eru víst ekki alls staðar alveg óumdeildir/SS.