Beint í efni

Vel heppnuð skyrhátíð í Finnlandi

28.09.2015

Biðröð myndaðist við bryggjuna í Helsinki út í eyju sem fékk nafnið Ísland um nýliðna helgi. Haldin var skyrhátíð til að fagna góðu gengi skyrs í Finnlandi en sala þar í landi hefur margfaldast á undanförnum árum og er nú meiri sala á skyri í Finnlandi en á Íslandi. Skyrævintýri í Finnlandi hófst með ferðalagi ungs manns að nafni Miikka Eskola til Íslands fyrir tæpum fimm árum síðan. Hann kolféll fyrir íslenska skyrinu og í framhaldinu náðist samkomulag við MS um samstarf og útflutning á skyrinu þangað. Nú er svo komið að eftirspurnin er mun meiri en framboðið þar sem framleiðslugetan annar vart eftirspurn en skyrið fyrir finnska markaðinn er bæði framleitt hér á Íslandi og hjá Thise-mjólkurbúinu í Danmörku fyrir MS.

 

 

 

Þegar hugmyndin um skyrhátíð kom upp vildu skipuleggjendur ólmir gefa gestum sínum meira en skyr að borða og því var sú nýstárlega leið farin að flytja Ísland til Finnlands yfir eina helgi með öllu tilheyrandi. Fjölmargir íslenskir listamenn lögðu leið sína til eyjunnar af þessu tilefni og lögðu sitt af mörkum til að gera upplifun gestanna sem besta. Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson og tvöfaldur heimsmeistari í Crossift, Annie Mist Þórisdóttir tóku á móti gestum íklædd íslenskum lopapeysum og var öllum boðið upp á skyr, boozt, íslenska fiskisúpu og pylsur. Hljómsveitirnar Sísý Ey, Víó og Retro Stefson spiluðu fyrir gesti ásamt DJ Margeir og matreiðslumeistarinn Siggi Hall mætti jafnframt og töfraði fram rétti úr íslensku hráefni á sérstökum hátíðarkvöldverði sem fram fór á laugardagskvöldinu. Finnskir gestir hátíðarinnar voru mjög ánægðir með hátíðina og það er ljóst að það er ekki bara íslenskt skyr sem fer vel ofan í Finna, heldur líka íslensk tónlist og íslenskur matur.

 

Fréttatilkynning frá MS