Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Vel heppnað Búgreinaþing bænda

04.03.2022

Búgreinaþing búgreinadeilda Bændasamtaka Íslands var sett í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn á Hótel Natura í Reykjavík í gær. Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra og Stefán Vagn Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis fluttu erindi og í framhaldinu héldu búgreinadeildirnar sína fundi sem sumum verður framhaldið í dag.

Eftir sameiningu búgreinafélaganna og Bændasamtaka Íslands síðastliðið sumar, mynda félögin nú deildir innan samtakanna sem starfa í breyttu félagskerfi bænda. Markmið sameiningarinnar var aukin skilvirkni félagskerfis bænda og efling hagsmunagæslu í landbúnaði. Rúmlega 200 bændur allsstaðar að af landinu og úr öllum búgreinum komu saman á þinginu þar sem helstu málefni íslensks landbúnaðar, stefnumörkun og framtíðarsýn voru rædd. Þar að auki kynntu fyrirtæki í landbúnaði vörur sínar og þjónustu og því sannkölluð bændahátíð í hjarta höfuðborgarinnar.

 

Tækifæri í íslenskum landbúnaði

 „Á nýju starfsári verður áfram unnið að eflingu í starfi Bændasamtakanna. Margt hefur áunnist á síðustu mánuðum og önnur og veigamikil verkefni eru framundan. Við þurfum að tryggja fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar, efla afkomu bænda og taka þátt af fullum krafti í loftlags- og umhverfismálum. Við þurfum einnig að tryggja sérþekkingu og virði, að til staðar séu aðilar með sérþekkingu á starfsumhverfi landbúnaðar og að afurðir séu í takt við óskir neytenda. Það er afar mikilvægt að þeir sem starfa við, eða í tengslum við landbúnað tileinki sér þá hugsun sem býr að baki því að standa vörð um frumframleiðslu íslenskra landbúnaðarafurða og líti á það sem tækifæri fyrir atvinnugreinina til þess að ná enn frekari árangri fyrir landbúnaðinn í heild sinni,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Ávarp matvælaráðherra, Svandísar Svavarsdóttur