Veffræðsla LK: Tækifæri jarðræktar
19.11.2012
Þriðji fyrirlestur Veffræðslu Landssambands kúabænda er nú aðgengilegur á vefnum. Í honum fjallar Finnbogi Magnússon, landbúnaðartæknifræðingur, um tækifæri jarðræktar í máli og myndum.
Til þess að sjá og hlusta á þennan áhugaverða fyrirlestur geta þeir sem eru nú þegar komnir með aðgang smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.