Veffræðsla LK: ræktunarstarfið og nautin 2015
02.02.2015
Áttunda erindið í Veffræðslu LK er nú komið á vefinn og er það jafnframt erindi nr. 40 hjá okkur! Þetta erindi er flutt af Guðmundi Jóhannessyni, ábyrgðarmanni nautgriparæktar hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins, og fjallar hann um ræktunarstarfið og nautin 2015 í þessu fína erindi.
Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo lúta að jarðvegsþjöppun en það er efni sem hefur notið vaxandi athygli á undanförnum árum og á mikið erindi við íslenska bændur og ráðgjafa. Þetta erindi mun Finnbogi Magnússon flytja, en hann er bútæknifræðingur og jafnframt framkvæmdastjóri Jötunn véla ehf.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Rétt er að taka fram að allir sem vilja geta fengið aðgengi og óhætt að mæla með því við sem flesta enda mörg erindi sem ná langt út fyrir nautgriparækt sem slíka.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda.
/SS