
Veffræðsla LK: notkun hjarðforritsins T4C
15.11.2017
Annað erindið í Veffræðslu LK þennan starfsvetur er nú komið inn á naut.is og fjallar það um notkun hjarðforritsins T4C en það forrit nota kúabændur með Lely mjaltaþjóna. Þetta erindi er flutt af Jónu Þórunni Ragnarsdóttur, ráðunaut hjá RML, og er þetta erindi kostað af fyrirtækinu VB landbúnaði ehf. Í erindinu fjallar hún um helstu notkunarmöguleika forritsins og sýnir hvernig má nýta sér margkonar gagnlegar upplýsingar frá kerfinu til þess að stýra betur búrekstrinum.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á þennan hlekk og slegið þar inn notendanafn og lykilorð (nota þarf Internet Explorer, Firefox eða Safari vefskoðara). Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi. Ef þú hefur fengið aðgengi, en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Þá ættu allir sem þegar hafa fengið aðgengi að kerfinu að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um þetta erindi. Ef hann hefur ekki borist er hugsanlegt að kerfið noti netfang sem ekki er í notkun svo ef þú hefur ekki fengið tölvupóst en ert með aðgengi, sendu okkur upplýsingar um nýtt netfang með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Vakin er athygli á því að þetta netfang er einungis vaktað einu til tvisvar sinnum í viku svo það getur tekið nokkurn tíma að fá svar/SS.