Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Veffræðsla LK: notkun hjarðforritsins Delpro

06.02.2017

Fjórði fyrirlesturinn í Veffræðslu LK þennan veturinn er kominn á vefinn og nú var röðin komin að Baldri Erni Samúelssyni, ráðunaut hjá RML, að flytja erindi. Þetta erindi fjallar sérstaklega um notkun hugbúnaðarsins Delpro frá DeLaval og er fyrirlesturinn í boði Bústólpa ehf., söluaðila DeLaval á Íslandi. Í þessu erindi fer hann yfir helstu kosti notkunar á hjarðforritsins við bætingu bústjórnarinnar. Einkar áhugavert erindi fyrir þá sem nota þetta forrit eða ætla að nota forritið á komandi tímum.

Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo fjalla um helstu nýjungarnar sem komu fram á sýningunum Agromek og EuroTier.

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Ef þú hefur fengið aðgengi en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.

Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.