
Veffræðsla LK: Kostir og gallar mismunandi fóðrunarkerfa
23.02.2017
Sjötti fyrirlesturinn í Veffræðslu LK í vetur er nú kominn á vefinn og nú tökum við fyrir kosti og galla mismunandi fóðrunarkerfa. Erindið er flutt af Sigtryggi Veigari Herbertssyni, ráðunauti hjá RML.
Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo fjalla um hvaða grasyrki henta best og það erindi mun Guðni Þorvaldsson, prófessor hjá Landbúnaðarháskólanum, flytja.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Ef þú hefur fengið aðgengi en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.