Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Veffræðsla LK: Illgresi og varnir gegn því

10.02.2018

Sjötta erindið í Veffræðslu LK þennan starfsvetur og það 76. í röðinni er nú komið inn á naut.is og fjallar það um illgresi og varnir gegn því. Þetta fróðlega og ítarlega erindi er flutt af Guðna Þorvaldssyni, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands og í erindinu fer Guðni yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga þegar hugað er að ræktun nytjaplantna og hvaða aðferðir henta best til þess að halda illgresinu í skefjum.

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á þennan hlekk og slegið þar inn notendanafn og lykilorð (nota þarf Internet Explorer, Firefox eða Safari vefskoðara). Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi. Ef þú hefur fengið aðgengi, en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Þá ættu allir sem þegar hafa fengið aðgengi að kerfinu að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um þetta erindi. Ef hann hefur ekki borist er hugsanlegt að kerfið noti netfang sem ekki er í notkun svo ef þú hefur ekki fengið tölvupóst en ert með aðgengi, sendu okkur upplýsingar um nýtt netfang með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is.  Vakin er athygli á því að þetta netfang er einungis vaktað einu til tvisvar sinnum í viku svo það getur tekið nokkurn tíma að fá svar/SS.