Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Veffræðsla LK: Heymetisturnar

03.05.2018

Nú er komið nýtt erindi inn í Veffræðslukerfi LK og fjallar það um heymetisturna, en undanfarin ár hefur umræða um og áhugi á bæði flatgryfjum, stæðuverkun og heymetisturnum aukist verulega hér á landi. Það var því upplagt að taka þetta erindi fyrir núna, í aðdraganda heyskapar víða um land í næsta mánuði. Það er Sigtryggur Veigar Herbertsson, bútækniráðgjafi RML, sem flytur þetta erindi. Þetta erindi er það 79. í röðinni í Veffræðslu LK.

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á þennan hlekk og slegið þar inn notendanafn og lykilorð (nota þarf Internet Explorer, Firefox eða Safari vefskoðara). Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.

Ef þú hefur fengið aðgengi, en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Þá ættu allir sem þegar hafa fengið aðgengi að kerfinu að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um þetta erindi. Ef hann hefur ekki borist er hugsanlegt að kerfið noti netfang sem ekki er í notkun svo ef þú hefur ekki fengið tölvupóst en ert með aðgengi, sendu okkur upplýsingar um nýtt netfang með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is.  Vakin er athygli á því að þetta netfang er einungis vaktað einu til tvisvar sinnum í viku svo það getur tekið nokkurn tíma að fá svar/SS.