Beint í efni

Veffræðsla LK: Helstu niðurstöður aðalfundar LK 2018

17.04.2018

Nú er komið nýtt erindi inn í Veffræðslukerfi LK og fjallar það um helstu niðurstöður frá aðalfundi Landssambands kúabænda 2018, sem haldinn var á Selfossi í byrjun apríl. Það er Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri LK, sem flytur þetta erindi og eins og titillinn gefur til kynna ræðir hún málefni aðalfundarins og skýrir m.a. afar vel þær ályktanir sem samþykktar voru. Þarna er farið í stuttu máli yfir helstu hagsmunamál greinarinnar og fá áheyrendur þarna á tuttugu mínútum afar góða innsýn inn í komandi starfsár samtakanna. Þetta erindi er það 78. í röðinni í Veffræðslu LK og eru nú tvö erindi eftir á þessum starfsvetri.

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á þennan hlekk og slegið þar inn notendanafn og lykilorð (nota þarf Internet Explorer, Firefox eða Safari vefskoðara). Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.

Ef þú hefur fengið aðgengi, en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Þá ættu allir sem þegar hafa fengið aðgengi að kerfinu að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um þetta erindi. Ef hann hefur ekki borist er hugsanlegt að kerfið noti netfang sem ekki er í notkun svo ef þú hefur ekki fengið tölvupóst en ert með aðgengi, sendu okkur upplýsingar um nýtt netfang með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is.  Vakin er athygli á því að þetta netfang er einungis vaktað einu til tvisvar sinnum í viku svo það getur tekið nokkurn tíma að fá svar/SS.