
Veffræðsla LK: helstu niðurstöður aðalfundar LK
12.04.2017
Nú er komið nýtt erindi inn í veffræðslukerfi LK þar sem farið er yfir helstu niðurstöður aðalfundar LK sem haldinn var á Akureyri dagana 24.-25. mars sl. Erindið er flutt af Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra LK. Farið er yfir helstu mál; kosningar til stjórnar og búnaðarþingsfulltrúa, samþykktarbreytingar, félagsgjald LK og samþykktar ályktanir af fundinum.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Ef þú hefur fengið aðgengi en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
/SS