Veffræðsla LK: Helstu niðurstöður aðalfundar LK
13.05.2016
Nú er komið inn í Veffræðslukerfi LK 60. fræðsluerindið og það síðasta á þessari önn. Erindið, sem flutt er af Baldri Helga Benjamínssyni framkvæmdastjóra LK, fjallar um öll helstu og mikilvægustu málefni síðasta aðalfundar LK.
Með þessu erindi lýkur þessum fjórða fræðsluárinu hjá Veffræðslu LK og verður nú gert hlé á starfseminni fram á komandi haust.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa@naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Rétt er að taka fram að allir sem vilja geta fengið aðgengi og óhætt að mæla með því við sem flesta enda mörg erindi sem ná langt út fyrir nautgriparækt sem, hvert öðru áhugaverðara.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.