Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Veffræðsla LK: Gerð kynbótaáætlunar

05.10.2015

Fyrsta erindi Veffræðslu LK þessa fjórðu önn fræðslustarfsins hefur nú verið birt á vefnum og að þessu sinni er kastljósinu beint að gerð kynbótaáætlunar. Erindið flytur Elin Nolsöe Grethardsdóttir, ráðunautur hjá RML, og kallast það: „Gerð kynbótaáætlunar stuðlar að framförum.

 

Þetta er erindi sem á erindi við allt áhugafólk um kynbætur en Elin fer vítt yfir sviðið og rekur helstu kosti við það að gera kynbótaáætlun.

 

Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo fjalla um rými á legusvæði en það erindi mun Sigtryggur Veigar Herbertsson, aðbúnaðarfræðingur og ráðgjafi hjá Jötunn hf, flytja.

 

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.

 

Rétt er að taka fram að allir sem vilja geta fengið aðgengi og óhætt að mæla með því við sem flesta enda mörg erindi sem ná langt út fyrir nautgriparækt sem slíka en í dag eru komin 47 erindi inn í Veffræðslukerfi LK.

 

Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda.

/SS