Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Veffræðsla LK: erindi um grænfóðurrækt

30.03.2015

Nýr fyrirlestur í Veffræðslu LK er nú kominn í loftið og fjallar hann um grænfóðurrækt. Við fengum Eirík Loftsson, ábyrgðarmann jarðræktar hjá RML, til þess að fara yfir þetta efni. Þetta er afar góður, stuttur og hnitmiðaður fyrirlestur á kórréttum tíma, nú þegar styttist óðum í sáningu.

 

Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo Sigtryggur Veigar Herbertsson, aðbúnaðarfræðingur, flytja en hann ætlar að taka fyrir aðbúnað og aðstöðu nautgripa á beit. Það erindi mun birtast um miðjan apríl og er það næst síðasta hjá okkur þennan vetur.

 

Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi. Rétt er að taka fram að allir sem vilja geta fengið aðgengi og óhætt að mæla með því við sem flesta enda mörg erindi sem ná langt út fyrir nautgriparækt sem slíka.

 

Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda.

/SS