
Veffræðsla LK: Erfðamengisúrval og SpermVital meðhöndlun á sæði
20.01.2017
Þriðji fyrirlesturinn í Veffræðslu LK þennan veturinn er nú kominn á vefinn og að þessu sinni er það Baldur Helgi Benjamínsson, verkefnisstjóri hjá BÍ og fyrrverandi framkvæmdastjóri LK, sem tekur fyrir hið einkar áhugaverða umfjöllunarefni sem er um erfðamengisúrval og jafnframt fjaller hann um í fyrirlestrinum um þá möguleika sem felast í notkun á SpermVital. Hér er á ferðinni afar áhugavert efni sem varðar framtíðarhagsmuni allar ræktenda á Íslandi.
Næsta erindi í Veffræðslu LK mun svo fjalla um rétta notkun hjarðforrita og er það Baldur Samúelsson, ráðunautur hjá RML, sem mun taka fyrir DelPro hjarðforritið að þessu sinni.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða eldri fyrirlestra þá geta þeir sem eru með aðgengi smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að kerfinu eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Ef þú hefur fengið aðgengi en hefur glatað annað hvort notendanafninu eða lykilorðinu getur þú einnig sent tölvupóst á sama netfang og fengið endursendingu. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.