Veffræðsla LK: Beit eða ekki beit?
22.05.2013
Nú er komið nýtt erindi í Veffræðslukerfi LK og fjallar það um sumarbeit. Það er Þóroddur Sveinsson, tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands á Möðruvöllum, sem flytur þetta erindi og tekur á helstu atriðum sem hafa þarf í huga varðandi beit mjólkurkúa.
Til þess að sjá og hlusta á þennan fyrirlestur eða aðra geta þeir sem eru nú þegar komnir með aðgang smellt hér á hlekkinn fyrir neðan og slegið þar inn notendanafn og lykilorð. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang eru að sjálfsögðu hvattir til að gera það (er ókeypis) með því að senda tölvupóst á skrifstofa(a)naut.is. Taka þarf fram fullt nafn og bæjarnafn eða starfheiti ef viðkomandi er ekki kúabóndi.
Með því að smella hér færist þú yfir á Veffræðslusvæði Landssambands kúabænda/SS.