
Varirnar fluttar út
17.04.2018
Allskonar hliðarafurðir og sérvinnsluafurðir hjá sláturleyfishöfum eru alltaf að verða mikilvægari og mikilvægari og það nýjasta á þessu sviði er útflutningur á vörum kúa! Það er nautgripasláturleyfishafi í Danmörku sem hefur tekið upp á þessari nýjung og eru varirnar skornar af og seldar til Þýskalands fyrir gott verð. Reyndar hefur verið eftirspurn eftir vörum kúa um hríð en oftast hefur þá hausinn verið seldur í heild sinni og hafa kaupendur þá fengið ýmislegt annað með eins og gefur að skilja.
Að sögn Carsten Nielsen, sem fer fyrir sláturhúsinu sem er í þessari sérstöku vinnslu, þá skiptir höfuðmáli að nýta allar hliðarafurðir og vinna þær vel enda er góður markaður í Asíu fyrir nánast allt sem fellur til. Aðspurður um hvað varirnar færu á, þá sagði hann í viðtali við danskan fjölmiðil, að það fáist 49-65 íslenskar krónur fyrir kílóið af vörum sem er helmingi hærra verð en fáist fyrir húðina af hausnum.
Ef einhver hefur áhuga á að kynna sér hvernig varir eru matreiddar, þá má finna uppskriftir víða á netinu með því t.d. að slá inn leitarorðið „Beef lips“/SS.