Beint í efni

Útlánaáætlun Byggðastofnunar 2009

05.02.2009

Stjórn Byggðastofnunar hefur samþykkt útlánaáætlun stofnunarinnar fyrir árið 2009.  Það er kunnara en frá þurfi að segja að aðstæður á fjármagnsmarkaði eru erfiðari nú en áður hefur þekkst. Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að skerpa enn frekar á áherslum í útlánastarfseminni með það að megin markmiði að útlánageta stofnunarinnar nýtist sem allra best.

Í  samræmi við þetta leggur Byggðastofnun einkum áherslu á eftirfarandi viðmið á árinu 2009:

  1. Vegin meðaláhætta allra útlána ársins 2009 verði ekki hærri en 10%.
  2. Miðað skal við að áhætta vegna eins eða fleiri tengdra aðila fari ekki yfir 150 mkr.
  3. Ekki verður lánað til endurfjármögnunar á langtímalánum viðskiptabanka og sparisjóða.
  4. Sérstök áhersla verði lögð á gjaldeyrisskapandi eða gjaldeyrissparandi verkefni.
  5. Sköpun eða varðveislu varanlegra starfa.
  6. Skerpa þarf á kröfum um eiginfjárframlag til nýrra verkefna til að auka möguleika á að verkefnið takist við þær aðstæður sem nú eru á fjármagnsmarkaði, auk þess sem telja verður að verðmæti og markaðshæfi veða sé nú almennt minna en framan af árinu 2008.

Þá liggur fyrir, vegna aðstæðna á fjármagnsmörkuðum, að lánveitingar á árinu 2009 verða einungis í íslenskum krónum.

 

Lánareglur, leiðbeiningar og umsóknareyðublöð er að finna hér.

 

Af www.byggdastofnun.is