
Úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi
01.12.2022
Laugardaginn 19. nóvember 2022 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2023, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1152/2022.
Fjögur tilboð bárust um innflutning á smurostum frá Noregi, (0406.3000) samtals 48.000 kg., á meðalverðinu 2 kr./kg. Hæsta boð var 20 kr./stk. en lægsta boð var 0 kr./stk. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 13.000 kg. á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.
Matvælaráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:
Smurostar frá Noregi 2023
Magn (kg) | Tilboðsgjafi |
2.815 | Innnes ehf |
2.000 | Krónan ehf |
8.185 | Stjörnugrís ehf |