
Upptaka af erindi Julian Cribb
12.10.2011
Þekktur fyrirlesari frá Ástralíu, Julian Cribb, hélt erindi um fæðuöryggi og matvælaframleiðslu í heiminum í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar mánudaginn 17. október sl. Hér á vefnum er hægt að nálgast upptöku frá fundinum ásamt afriti af glærum Julian.
UPPTAKA af fyrirlestri Julian Cribb
Glærur - pdf
Umræður - upptaka
Fæðuöflun fyrir sífellt fleiri jarðarbúa á tímum loftslagsbreytinga, umhverfisvandamála, vaxandi vatnsskorts og dvínandi framboðs af áburðarefnum verður einhver mesta áskorun sem mannkynið hefur nokkru sinni tekist á við. Í hnotskurn þarf að framleiða meira af mat til ársins 2060 en sem nemur fæðuöflun jarðarbúa frá upphafi. Spurt var á fundinum hvernig þjóðir heims væru í stakk búnar að mæta þessum veruleika og hvað lönd eins og Ísland og hinar Norðurlandaþjóðirnar gætu lagt af mörkum.
Á eftir erindi Julian Cribb voru pallborðsumræður undir stjórn Gríms Valdimarssonar, fyrrverandi forstöðumanns hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO). Í pallborði tóku þátt Áslaug Helgadóttir hjá LbhÍ, Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Sjöfn Sigurgísladóttir framkvæmdastjóri hjá Matorku, Daði Már Kristófersson hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun og Andrés Arnalds frá Landgræðslunni.
Julian Cribb er sérfræðingur í miðlun vísindalegrar þekkingar og býr í Ástralíu. Hann gaf á síðastliðnu ári út bókina „The Coming Famine - The Global food crisis and what we can do to avoid it,“ sem hlotið hefur verulega athygli. Julian er reyndur fyrirlesari og hefur flutt fyrirlestra um þessi efni víða um heim en Íslandsheimsóknin er hluti af Evrópuferð hans.
Aðstandendur fundarins voru sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Landgræðsla ríkisins, Bændasamtök Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands. Jón Bjarnason, ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðar, ávarpaði samkomuna í upphafi. Markmið fundarins var að efla umræðu um fæðuöryggi á Íslandi, hvernig við þurfum að bregðast við utanaðkomandi áhrifavöldum og hvaða sóknarfæri Ísland gæti átt í nýrri heimsmynd matvælaframleiðslu.