Uppgjör skýrsluhaldsins í júní komið út hjá BÍ
14.07.2010
Niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir júní eru nú komnar út hjá BÍ. Alls komu 611 bú til uppgjörs og eru það hlufallsleg skil upp á 94% en í júní árið 2009 komu til uppgjörs 91% skýrsluhaldsbúanna. Alls eru skýrslufærðar 22.731 árskýr. Líkt og liðna mánuði sveiflast landsmeðalnytin mikið á milli mánaða, sem skýrist að hluta af mismunandi bakgrunnsupplýsingum. Upplýsingar um meðalnyt
þarf því að skoða í því ljósi en sl. 12 mánuði mælist hún 5.298 kg/árskú.
Samtals reiknast nú 17 bú yfir 7.000 lítra meðalnyt en í júní árið 2009 voru þau 12, en eins og í fyrri mánuði er það Lyngbrekkubúið sem er með hæstar meðalafurðir eða 7.872 kg/árskúna. Allar nánari upplýsingar má lesa á upplýsingasíðu BÍ um skýrsluhaldið með því að smella hér.