Beint í efni

Umsóknarfrestur í þróunarfé nautgriparæktar til 1. október

15.09.2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í nautgriparækt samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning í landbúnaði.

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greinunum svo sem ráðgjafar-, kynningar-, rannsókna- eða tilraunaverkefni sem og, vöruþróunar- og endurmenntunarverkefni. Fagráð nautgriparæktar veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í þróunarfé nautgriparæktarinnar.

Umsókn skal skila rafrænt á mínu síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins. Sérstök umsókn er fyrir hverja búgrein og umsækjendur eru beðnir um að gæta að því.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2021

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnir á tölvupóstfang anr@anr.is