
Umsögn BÍ um matvælafrumvarp
13.10.2008
Bændasamtök Íslands hafa unnið ítarlega umsögn um matvælafrumvarp landbúnaðarráðherra sem lagt var fram á Alþingi fyrr á þessu ári. Í september sl. var umsögnin afhent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis en hér á vefnum er gerð grein fyrir helstu áhersluatriðum í umsögninni.
Til stóð að afgreiða matvælafrumvarpið sem lög frá Alþingi á stuttu haustþingi en því var frestað. Það hefur í för með sér að ríkisstjórnin verður að endurflytja málið. Fastlega er búist við að ríkisstjórnin reyni að fá málið afgreitt frá Alþingi fyrir áramót.
Eins og fram hefur komið í Bændablaðinu setti stjórn Bændasamtakanna í gang vinnu á ýmsum vígstöðvum til þess að geta veitt faglega umsögn um frumvarpið. Þeirri vinnu lauk 11. september sl. þegar umsögnin var afhent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis. Umfang hennar er það mikið að ekki var hægt að gera henni tæmandi skil í Bændablaðinu en þess í stað var áhugasömum vísað á heimasíðu Bændasamtakanna, þar sem flest gögn málsins er að finna. Hér undir eru tenglar á umsögn BÍ, helstu niðurstöður Lagastofnunar HÍ og álitsgerð Margrétar Guðnadóttur sem birst hefur áður hér á síðunni.
Umsögn BÍ - pdf
Helstu niðurstöður Lagastofnunar HÍ - pdf
Umsögn dr. Margrétar Guðnadóttur - pdf