Beint í efni

Umdæmi héraðsdýralækna verða fjögur

31.05.2021

Skrifstofur Matvælastofnunar á Egilsstöðum og Neskaupstað verða áfram reknar þar samhliða skrifstofu umdæmisins á Akureyri.

Við endurskoðun á fyrirkomulagi dýralæknisþjónustu í dreifðum byggðum landsins árið 2020 var ákveðið að fækka héraðsdýralæknum samhliða að auka verkkaup af dýralæknum í dreifðum byggðum til að tryggja öruggari aðgengi íbúa að dýralæknaþjónustu. Seinni áfangi verður nú stiginn sem er fækkun úr fimm umdæmum í fjögur en fyrri áfanginn var stiginn í fyrra þar sem Vesturumdæmi var skipt upp milli Suðvestursumdæmis og Norðvestursumdæmis.

Umdæmin eru nú þessi:

  • Suðvesturumdæmi: Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit, Kjósarhreppur, Kópavogsbær , Mosfellsbær, Reykjanesbær, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær, Skorradalshreppur, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar.
  • Norðvesturumdæmi: Akrahreppur, Árneshreppur, Blönduósbær, Bolungarvíkurkaupstaður, Dalabyggð, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Skagabyggð, Strandabyggð, Súðavíkurhreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.
  • Norðausturumdæmi: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Fjarðarbyggð, Fljótsdalshreppur,Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Múlaþing (að Hamarsfjarðarlínu), Norðurþing, Skútustaðahreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur Vopnafjarðarhreppur og Þingeyjarsveit.
  • Suðurumdæmi: Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Múlaþing sunnan Hamarsfjarðarlínu, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Skaftárhreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær.