Beint í efni

Tímamót í sölu mjólkurafurða: meiri sala á fitu en próteini!

20.06.2013

Samkvæmt nýju yfirliti um framleiðslu og sölu á mjólkurafurðum hafa nú orðið þau tímamót í íslenskri mjólkurframleiðslu að sala á fitugrunni er orðin meiri en sala á próteingrunni. Sú hefur ekki verið raunin í áratugi, a.m.k. síðan núverandi aðferðir við útreikning á sölu mjólkurafurða voru teknar upp fyrir 20 árum. Þá hefur það einnig gerst í fyrsta skipti síðan 1980 að sala á smjöri er meiri en 1.000 tonn á einu ári.

 

Á tímabilinu júní 2012 til maí 2013 var sala á fitugrunni 116,3 milljónir lítra en sala á próteini losar 116 milljónir lítra. Innvigtun mjólkur á þessu tímabili var 123,8 milljónir lítra. Greiðslumark yfirstandandi árs er 116,5 milljónir lítra. 

 

Að óbreyttu stefnir í að greiðslumark ársins 2014 verði miðað við sölu á fitugrunni. Í því fælust einnig talsverð tímamót./BHB